|
Textabox
Velkomin/nn á síðuna mína, endilega kvittaðu fyrir komuna ef þú þekkir mig:)
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 20900
Elskurnar mínar & fleiri :)
|
24.05.2009 22:52:08 / solveig81
Eru einhverjir enn að heimsækja bloggið mitt?  ég var satt að segja búna gleyma að ég væri með blogg  held að facebook sé alveg komið í staðin fyrir bloggskrifin hjá mér...svo er sumar núna og þá nenni ég ekki að blogga, og svo er of mikið um að vera sem gerist of hratt til að ég nái að segja frá því hér  svo eru eiginlega allir hættir þessu bloggstandi er það ekki? jæja vona að þið eigið skemmtilegt og viðburðaríkt sumar í vændum  eitt er víst að ég ætla sko að skemmta mér feitt í sumar.............og er þegar að því  Love Sólveig Helga
»
07.04.2009 21:51:42 / solveig81
»
25.03.2009 23:03:09 / solveig81
»
11.03.2009 18:20:17 / solveig81
»
07.03.2009 02:55:32 / solveig81
»
18.02.2009 17:45:54 / solveig81
Sælt veri fólkið  Nú er skvísan byrjuð í hörku próflestri til og með 27.feb og þið fáið engar fréttir hér á meðan enda lítið annað en lestur í gangi hjá mér í bili  Lokaprófin byrja núna á föstudaginn 20. feb og fræðin eiga allan hug minn núna þar til prófunum lýkur. Hafið það gott elskurnar og ekki halda að það megið ekki hringja í mig eða skilja eftir skilaboð þó ég sé svona upptekin á næstunni, það er alveg í lagi  Læt heyra frá mér hér þegar þessu annatímabili lýkur og þá fái þið einhverjar fréttir af því hvernig mér gekk og hvað ég er að fara gera eftir prófin  Love Sólveig Helga hjúkkulíus!
»
09.02.2009 22:12:42 / solveig81
Kominn tími á smá blogg það hefur ýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast, bæði gott og leiðinlegt, samt aðallega gott. Skólinn gengur sinn vangang og það er farið hratt yfir efnið og erfitt að halda í við þegar svo mikið efni hellist yfir mann á stuttum tíma, prófin bara núna í febrúar en þetta reddast nú allt! mér finnst alltaf jafngaman að því sem ég er að læra. Er búin að komast að því hvað vekur mestan áhuga hjá mér í þessu námi öllu saman og það eru hjartasjúkdómar og krabbamein og allt sem tengist því, en annars elska ég þetta eiginlega allt nema vefjagigt haha
Moli "minn", kettlingurinn sem ég tók að mér, fóstraði og elskaði í 3 mánuði er farinn og það er sárt og ég viðurkenni það alveg, en ég var orðin svo lasin út af honum og neyddist til að bregðast við því og láta hann fara en það var ekki gert efasemdalaust! En allavega þá hjálpaði stóri brósi mér að finna nýtt heimili handa honum og kynnti mig fyrir mjög góðu fólki í Grafarvoginum sem tók hann að sér og ég heimsótti þau um daginn og sá að honum líður mjög vel þar Það var mjög erfitt að gefa hann einhverjum öðrum og ég sé óskaplega eftir honum og við öll hér heima en það hjálpar að vita hvað hann er hjá góðu fólki og ég ætla heimsækja hann af og til. Það er samt skrýtið að sjá Snúbbý og Mola ekki leika saman lengur og taka á móti mér þegar ég kem heim úr skólanum eins og vant var þeir sitja ekki lengur saman og horfa út um gluggann á kvöldin, ég held að Snúbbý sakni hans jafnmikið og ég mér finnst ósanngjarnt að hafa fengið ofnæmi...,
Um helgina, á laugardagskvöldið, var svo árshátíð hjúkrunarfræðinema haldin á Rúbín í Öskjuhlíð og ég hélt fyrirpartý fyrir bekkinn minn á undan sem var voða skemmtilegt og húsið fylltist af fólki í sínu fínasta pússi ég var búna kaupa góðar veigar og baka líka og finna til réttu tónlistina og svona og þetta var bara mjög vel heppnað held ég Það voru allir svo rosalega fínir og kátir þetta kvöld og árshátíðin sjálf var æðislega skemmtileg, borðhaldið og skemmtiatriðin fín, maturinn góður og mikið dansað langt fram á nótt ég elska bekkinn minn á sunnudaginn var svo vinna og ég var að taka fyrstu vaktina mína á 14E sem fullábyrgur starfsmaður, ekki lengur "starfsmaður í þjálfun" og allt gekk vel og mér líkar alveg ótrúlega vel á þessari deild og það er frábært fólk að vinna þarna og hjúkrunin er skemmtileg og áhugaverð. Vonast til að fá fulla vinnu þarna áfram í sumar nú eru próf eftir 11 daga og þau eru búin í lok febrúar og þá fer ég í smá hlé frá skólanum og verð bara vinna þangað til verknámið á skurðdeild hefst svo hlakka geðveikt til! nóg að gera eins og alltaf og nú fer mikill annatími af stað og ég þarf að fara læra á hverjum einasta degi marga tíma á dag. Ég er byrjuð í ræktinni á fullu aftur og það er rooosalega gott. Það er fátt betra en að taka svakalega á því í ræktinni, skella sér í heita sturtu á eftir og vera endurnærður og hress á eftir ég finn strax hvað þettaq hefur góð áhrif á líðanina og atorkan eykst dags daglega. Það verður sko lyft og lyft og hlaupið á næstu mánuðum til að stækka vöðvana og auka þolið Love you guys, Sólveig Helga
hva nennir bara ein manneskja að kommenta? hættiði að vera svona löt mér finnst svo gaman að vita hverjir eru að lesa, sé á heimsóknum að það er slatti af fólki
»
21.01.2009 19:45:26 / solveig81
»
02.01.2009 10:06:09 / solveig81
Og aldrei það kemur tilbaka þessi setning og merking hennar vekur ætíð dálitla sorg í mínu hjarta vegna þess að hún lýsir óhjákvæmilegum gangi lífsins og minnir mig líka óþægilega á það hvað tíminn líður hratt. Sama augnablikið, sama árið, kemur aldrei aftur!!! Það tilheyrir alfarið hafsjó fortíðarinnar og þaðan fæst það víst aldrei endurheimt, en enginn getur þó nokkurn tíman tekið frá okkur minningarnar og yfir því er hægt að gleðjast En allar vonir manns á þessari stundu eru bundnar við ókomin ár og allt það sem þau munu koma til með að færa okkur. En á sama tíma og þetta lag vekur sorg hjá mér þá elska ég þetta lag líka, textinn er svo flottur og lagið við hann svo fallegt og hjá mér eru engin áramót án þess að ég heyri þetta lag a.m.k. einu sinni hljóma og ég tek auðvitað vel undir sjálf! 
Þessi áramót voru mjög skemmtileg, bróðir minn og fjölskyldan hans komu hingað í Grafarvoginn og amma Helga líka og auðvitað var yndislegt að hafa þau. Við borðuðum glæsilega matreiddan og gómsætan kalkún sem mamma og pabbi hjálpuðust að við að elda allan gamlársdag og svo var farið á brennu, horft og hlustað á ræðu forsætisráðherra í sjónvarpinu og áramótaskaupið og loks skotið upp flugeldum og gamla árið kvatt með stæl Um miðnætti var skálað saman í kampavíni og hlustað á áramótalög til að fagna nýju ári og við gæddum okkur á ýmsum veigum sem mamma gerði fyrir kvöldið. Svo komu Bergþóra vinkona mín og Rósíka heim til mín um eitt leytið og þær voru í rosa stuði og við settum upp gamlárshatta og fengum okkur hvítvín og fleira gott að drekka áður en við héldum á áramótaball með Sálinni á Broadway þangað lögðu sko margir leið sína þessa nýársnótt og var algjörlega troðið en voða gaman að fara og sjá alla og dansa og skemma sér. Þetta voru mjög skemmtileg og góð áramót
Jólin og áramótin eru því enn einu sinni gengin í garð og næstum liðin og voru með eindæmum yndisleg og notaleg þetta árið. Ég er bara búin að njóta þess að slappa af og gera nákvæmlega það sem mér sýnist síðastliðnar tvær vikur eða frá því jólafríið mitt hófst Hef verið að horfa mikið á video, lesa annað en skólabækurnar og soooofa fór svo eitthvað í heimsóknir og djammaði tvisvar. Á aðfangadag voru amma mín og afi hjá okkur sem var yndislegt og allir fengu fínar gjafir og rjúpurnar voru mjög ljúffengar og allt svo hátíðlegt. Ég fékk 9 persónuleg jólakort þessi jólin sem er met og þakka ég mikið fyrir þau, það gladdi mig sérstaklega mikið að vinkonur mínar sem eru komnar með fjölskyldur hafi sent mér kort með myndum af börnunum sínum Verð að segja að þetta eru fallegustu börn sem um getur og fékk ég tár í augun við að opna kortin, lesa það sem stóð og myndirnar af litlu krílunum eru komnar inn í albúmið mitt Já ég á margar góðar vinkonur sem ég elska:* Ósköp tíðindalítil og ljúf jól annars og einkunnirnar mínar eru allar komnar nema ein og mér gekk bara vel
Nú eru nákvæmlega 3 dagar þar til skólinn minn tekur til starfa á ný, hjúkrunarfræðideildin, og ég hlakka mikið til. Önnin lítur mjög vel út, ég verð í fjórum áhugaverðum fögum og tek svo 4 vikur í verknámi í lok vorprófa sem eru núna í lok febrúar ólíkt því sem verið hefur. Námið verður því nokkuð stíft af því önnin er svo stutt en að sama skapi léttari og skemmtilegri fög en á síðustu önn og ég kemst snemma út í sumarið að vinna við mitt fag Svo verð ég að vinna á nýjum stað með námi á þessari önn og vonandi í sumar líka ef mér líkar vel á hjartadeild 14E LSH við Hringbraut. Ég er mjög spennt fyrir því að byrja vinna þar og prófa eitthvað alveg nýtt og læra meira um hjartað og það sem ég hef verið að lesa um í skólanum. Svo ég er að fara hjúkra fólki með ýmsa hjartasjúkdóma og eru kransæðastíflur og hjartaáföll algeng ástæða innlagnar á þessa deild. Hingað til hef ég verið að vinna á meltinga-og nýrnadeildinni 13E svo ég er að fara yfir í allt annað núna og því ætti ég að fá nokkuð fjölbreytta starfsreynslu Hlakka mikið til að kynnast þessu öllu saman.
Þrátt fyrir að komandi önn sé þéttsetin skyldum og verkefnum þá ætla ég auðvitað ekkert að slaka á í djamminu og skemmtanalífinu ég sé fram á mjög ríkulegt félagslíf og er nú þegar búin að plana að fara til Akureyrar um miðjan janúar að skemmta mér með bestu vinkonum mínum úr hjúkkunni og svo er búið að bjóða mér í stórt afmælispartý og sjálf ætla ég að halda stórt bekkjarpartý á önninni og vera dugleg að mæta í vísindaferðir vetrarins Ég er mjög bjartsýn í upphafi árs enda sé ég enga ástæðu til annars, er búin að strengja nokkur áramótaheit og setja mér mikilvæg markmið fyrir næsta árið sem ég ætla mér að ná.
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og farsældar í framtíðinni. Megi þetta herrans ár 2009 veita ykkur hamingju og hlífa ykkur við sorg kæru lesendur mínir nær og fjær! Megi draumar ykkar rætast
Sólveig Helga hjúkkulíus
»
16.12.2008 12:14:20 / solveig81
»
07.12.2008 21:47:29 / solveig81
»
28.10.2008 21:30:00 / solveig81
»
23.09.2008 21:09:02 / solveig81
Ég ætla að blogga smá núna fyrst ég man ég hef ekki gefið mér mikinn tíma til þess undanfarið enda alltaf meira en nóg að gera hjá mér og þá gleymi ég oft öllu öðru nema því sem ég er mest upptekin af, semsagt náminu og að skemmta mér En svo ég segi meiri skemmtisögur hér þá fór ég í stórskemmtilega vísindaferð í Actavis með hjúkkunum mínum um daginn, tvær vikur síðan, og þar fengum við góðan fyrirlestur og móttökur og nóg að borða og drekka ég var sko að fíla það í botn. Svo var haldið á stað sem heitir Sportbarinn rétt hjá Hótel Íslandi og þar var sko mikið fjör og hjúkku-og verkfræðinemar djömmuðu saman ég skemmti mér hrikalega vel þarna og hitti fullt af fólki sem ég þekki og suma sem ég hef ekki séð í mörg ár, enda dvaldi ég á staðnum í marga klukkutíma Myndirnar sem ég á frá kvöldinu og eru inn á facebook tala alveg sínu máli um hversu gaman þetta var. Ég átti miða á Sálina á Broadway síðar þetta sama föstudagskvöld en var svo lengi á Sportbarnum í ruglinu að þegar ég loks dreif mig á ballið var Sálin að syngja síðasta lagið og ég búna týna vinum mínum hehe en ég dansaði nú bara samt og fann svo hana Lísu mína sem ég reyndar týndi svo að lokum líka eftir að hafa dansað soldið við hana... já ég veit ég var skrautleg þetta kvöld En ég lét þá staðreynd að ég væri orðin "ein" eftir á Broadway ekki stöðva mig í að skemmta mér áfram og dansaði brjálað mikið þessa nótt og var í svakalegu stuði endaði svo ein fyrir utan ballstaðinn að leita að leigubíl um 5 leytið hehe. Svo fór ég í Bláa lónið í fyrsta sinn daginn eftir og það var ótrúlega nice og gaman að koma loks þangað, en hárið mitt er reyndar enn að jafna sig eftir kísilinn þar sem ég "gleymdi" að setja það upp í tagl áðuren ég fór oní lónið mæli ekki með því.. svo borðaði ég líka í lóninu dýrindis máltíð og átti frábæran dag í skemmtilegum félagsskap ... djúsaði svo smá aftur um kvöldið og gisti í Keflavík fram á sunnudag og hélt þá heim og lærði soldið.. já alltaf nóg að gera í skemmtanalífinu síðan skólinn byrjaði Það er cracy að gera í skólanum núna samt og ég er að fara í fyrsta verklega og munnlega próf vetrarins á föstudaginn og svo er ég að byrja í 3 vikna verknámi á þvagfæraskurðdeild LSH, hvorki meira né minna, eftir næstu helgi ég er bæði rosa spennt og drullunervus enda búið að fara yfir mikið efni í verklegu stofunni í september og nú reynir á kunnáttuna...já það er sko ekki auðvelt að vera 2.árs hjúkkunemi en það er ofsalega gaman því við nemar fáum að gera miklu meira en í fyrra. Ég er t.d. búna fá sýnikennslu og æfingu í að sprauta, búa um sár, gefa vökva, setja upp þvaglegg, taka til lyf og reikna út rétta lyfjaskammta og blanda sýklalyf Kröfurnar eru orðnar meiri og hjúkrunarverkunum fjölgar sem ég á að hafa á valdi mínu og það er farið mjög hratt yfir efnið í öllum námskeiðum. En ég tek þessu öllu með ró enda veit ég að allt á þetta eftir að ganga vel og mér líkar alltaf jafnvel í náminu mínu
Kv.Sólveig Helga!
»
02.09.2008 22:53:00 / solveig81
»
Síður: 1 2 3 4
|
|